Kjúklingasalat með kirsuberjum

Ég hef mjög ákveðnar skoðanir þegar kemur að kjúklingakjöti. Ég er nefnilega voðalega lítið spennt fyrir skinnlausum, beinlausum kjúklingabringum. Ég veit að það er sagt vera ,hollasti’ partur fuglsins og fleira í þeim dúr. En ekki aðeins finnst mér frekar leiðinlegt að matreiða þær heldur finnst mér kjötið yfirleitt of þurrt og lítið spennandi miðað við aðra parta fuglsins. Í mestu uppáhaldi hjá mér eru lærin – með beini og með skinni. Kjötið er meyrara, dekkra, bragðmeira og almennt miklu skemmtilegra að elda. Ég var því mjög spennt þegar ég fletti gömlu eintaki af Bon Appétit og rakst á uppskrift sem notar kjúklingalæri og lætur mann elda skinnið þar til það verður stökkt og skemmtileg viðbót í ferskt salat.

Við Elmar erum mjög hrifin af matarmiklum salötum og eldum t.d. steikarsalatið góða reglulega. Þetta salat er engu síðra og er núna eitt af uppáhaldsréttunum okkar (Elmar setur það m.a.s. í topp tíu af öllu því sem ég hef eldað síðustu árin). Það kom mér á óvart hvað kirsuberin pössuðu vel í salatið og hvað dillið í salatsósunni gaf skemmtilegt bragð. Nú tel ég að kirsuber séu kannski ekkert svo aðgengileg heima en ég held að vel þroskaðir kirsuberjatómatar myndu vera ágætis uppbót. En ef þið finnið kirsuber þá er þetta frábær leið til að borða þau.






















