Skip to content

Búsáhöld

Ég fékk tölvupóst um daginn þar sem lesandi spurði mig út í uppáhaldseldhústólin mín og hvaða tól eru mér nauðsynleg. Mér fannst þetta áhugaverð spurning þar sem ég finn ýmsar leiðir til að réttlæta innkaup á tólum og tækjum fyrir eldhúsið. Og þó að flest innkaupin hafi átt rétt á sér þá verð ég líka að viðurkenna að sumt hefur ekki reynst mjög vel – eins og hunangsskeiðin sem ég er ekki ennþá farin að skilja verkfræðina á bak við eða hálfmánahnífurinn sem liggur aftast í skúffunni. Þessi tækjagleði mín í eldhúsinu hefur áhrif á innkaup mín á flestu öðru – ég t.d. sleppi því að kaupa mér nýja skó eða flíkur því mér finnst mikilvægara að kaupa mér mandólín eða nýtt viðarbretti. Því er erfitt að gera upp á milli þess sem ég kann varla að vera án í eldhúsinu lengur og þess vegna er hérna (tada!) listi yfir það besta og ,nauðsynlegasta‘ sem leynist í Vesturheimseldhúsinu (í engri sérstakri röð).

1. Ofnhitamælir:  Ég gæti ekki verið án ofnhitamælis og vil ekki hugsa til þess einu sinni. Málið er að margir ofnar eru ekki rétt stilltir. Ég hef aldrei búið í íbúð þar sem ofninn hefur ekki verið langt frá því hitastigi sem ég í sakleysi mínu hélt að ég væri að stilla hann á. Gasofninn sem við erum með hérna í Brooklyn er öfgafyllsta dæmið um þetta til þessa en hitastigið inni í ofninum er 20 – 25°C heitara en stillingin á ofninum sýnir.

2. Rifjárn, gróft og fínt:  Eftir að ég eignaðist fyrsta Microplane rifjárnið mitt þá var ekki aftur snúið. Ég mun líklegast aldrei eiga aðra tegund af rifjárni. Ég á fínt rifjárn sem ég nota fyrir krydd, – eins og kanilstangir og múskathnetur – börk á sítrusávöxtum og þegar ég vil rífa harðan ost í fíngerðar ræmur. Ég á líka gróft sem ég nota fyrir grænmeti, ost, súkkulaði, engifer o.fl. Rifjárnin eru mjög beitt og endast mjög vel. Ég er ekki orðin mikil merkjamanneskja þegar það kemur að eldhúsinu en ég get óhikað mælt með Microplane.

3. Góð matvinnsluvél:  Ég keypti mér netta matvinnsluvél fyrir peninginn sem móðurfjölskylda mín gaf okkur í brúðkaupsgjöf og ég hef alls ekki séð eftir því. Ég nota vélina mjög mikið og mér finnst hún orðin alveg ómissandi. Hún er fljót að rífa niður og sneiða osta, lauk og annað grænmeti og ég nota hana til að búa til pastasósur, brauðmylsnu, salsa verde, bökudeig, pastadeig og margt fleira. Vélin sem við eigum er Kitchenaid og ég er einstaklega ánægð með hana.

4. Sítruspressa:  Embla Ýr systir mín gaf mér þessa sítruspressu þegar hún var í heimsókn hjá okkur síðasta vor og hún er notuð óspart í eldhúsinu. Ég er reyndar mikill sítrusfíkill og bý reglulega til límónaði, læmónaði, áfenga drykki sem þurfa mikið af límónum og kökur sem krefjast þess að maður kreisti heil ósköp af sítrónusafa. Pressan þrýstir öllum safanum í gegnum göt sem hindra að steinar og mikið aldinkjöt fari úr ávextinum í glasið. Hún er alveg frábær.

5. Hvítlaukspressa sem virkar:  Elmar horfði á mig með efasemdar- og hneykslunarsvip þegar ég kom fyrst heim úr uppáhaldsbúsáhaldabúðinni minni með hvítlaukspressuna okkar. Hann fullyrti að hann hefði aldrei notað hvítlaukspressu sem krefðist minni fyrirhafnar en að afhýða rif og saxa. Í dag mun Elmar vera fyrstur manna til að viðurkenna að þetta er eitt uppáhaldseldhúsáhaldið hans. Það þarf ekki að taka hýðið utan af hvítlauksrifinu áður en það er sett í pressuna og það þrýstir bókstaflega öllum hvítlauknum út og skilur einungis eftir hýðið. Nú veit ég ekki hvort þessi tiltekna tegund fæst heima á Íslandi en það er hægt að panta af Amazon eða hreinlega fá búsáhaldabúðina ykkar til að flytja hana inn. Pressan hefur ratað í ófáa gjafapakka frá okkur undanfarin ár.

6. Húðaður steypujárnpottur:  Ég hef skrifað oft um járnpottinn minn á þessari vefsíðu og það er ekki að ástæðulausu. Þetta er ein sniðugasta fjárfesting mín í eldhúsinu. Potturinn sem getur farið beint af hellu inn í ofn, leiðir hitann jafnt og vel, virkar á allar eldavélarhellur og er svo fagur að hann er hin mesta prýði á borðstofuborðinu. Svona pottar eru til í öllum verðflokkum – IKEA framleiðir svona pott, ég á ódýran pott frá Lodge en mig dreymir um að eiga einn frá Staub eða Le Creuset.

7. Steypujárnpanna:  Svona pönnur eru alveg fáránlega ódýrar hérna í Bandaríkjunum miðað við að með réttri meðhöndlun geta þær enst í margar kynslóðir. Mig langar voðalega lítið til að teygja mig í ódýru teflonhúðuðu IKEA pönnurnar mínar eftir að þessi panna kom í eldhúsið. Ég lofa ykkur því að engin panna mun snöggsteikja steik eins fallega og sjóðandi heit járnpanna, pönnukökurnar fá gyllta og stökka skorpu og allt kjöt verður betra steikt á pönnunni. Og þegar þið eruð ekki að nota hana þá má nýta hana sem æfingarlóð – þessar pönnur eru þungar.

8. Hnífabrýni:  Þetta er nýjasta (og ein ódýrasta) viðbótin í tólaskúffuna okkar og ég skil ekki af hverju ég beið svona lengi með að eignast svona brýni. Við eigum ódýra hnífa sem eru fljótir að missa bit og gera það að verkum að oft hef ég kreist allan safa úr tómötum við það að reyna að skera í gegnum þá. Þetta brýni er mjög einfalt í notkun og gerir eggina mjög beitta með nokkrum strokum.

9. Tangir:  Mér líður eins og ég sé næstum því handalaus þegar ég lendi í eldhúsi án tanga. Tangirnar eru eins og hitaþolin framlenging á höndunum og við notum þær daglega. Við eigum tvennar – einar stuttar úr málmi og aðrar langar sem eru sílíkonhúðaðar í endana. Í rauninni þarf maður bara þessar sem eru með sílíkonenda (því þær fara vel með húðaðar pönnur og potta) en ég nota líka málmtangirnar mikið.

10. Góð hrærivél:  Þetta eldhústæki er kannski ekki bráðnauðsynlegt. Ég var án hrærivélar í nokkur ár og notaði einungis hræódýran handþeytara með ágætis árangri. En fyrir þau okkar sem baka mikið þá felst mikill tíma- og vinnusparnaður í að eiga svona græju. Mér þykir vandræðalega vænt um fölgrænu KitchenAid vélina mína, strýk henni reglulega og sakna sko ekki þeirra daga þar sem ég stóð yfir skál af smjöri og sykri í fleiri mínútur með handþeytarann í annarri og tímarit í hinni (ég er ekki þolinmóð sál).

[Ég get eiginlega ekki lokið þessari færslu án þess að minnast á nokkur lúxustæki sem við erum orðin háð – espressóvélin okkar, kaffikvörninódýra en frábæra ísvélin og litla japanska mandólínið mitt.]

Þetta eru topp tíu eldhústólin okkar. Það væri líka gaman að heyra hvaða eldhúsáhöld eru í uppáhaldi hjá ykkur.

15 athugasemdir Post a comment
  1. Edda #

    Skemmtileg lesning og góðar pælingar, hef einmitt ekkert verið að hugsa út í hvað sumt er alveg hreint ómissandi í eldhúsinu en sú græja sem ég nota mest er frú kitchenaid, hrærivélin, strýk henni einmitt af og til (svo það setjist nú ekki ryk á hana ;)), það er bara svo auðvelt að henda í allskonar brauðmeti og kökur með hjálp hennar :) En mér líst rosa vel á sítruspressuna, hef aldrei séð hana og þarf að nálgast svona geggjaða hvítlaukspressu, hélt þær væru allar jafnleiðinlegar og mín ;)

    10/05/2012
  2. Ég hef ekki kommentað hjá þér áður (æðisleg síða btw!) en þar sem ég er nýflutt til Bandaríkjanna og skildi öll fínu eldhústólin eftir heima á Íslandi þá eru eldhústól mér ofarlega í huga :) Mín toppatriði eru góður kokkahnífur, tangir, trésleif, sítrusgræja og ég er gjörsamlega ástfangin af nýju steypujárnspönnunni sem ég keypti hræódýra í Target. Ég sakna aftur á móti fínu KitchenAid hrærivélarinnar og Le Creuset pottsins mest af öllu að heiman.

    10/05/2012
  3. Get ekki lifað án Ici Batter Whisk eins og þú vel veist. Bollakökurnar mínar urðu svo miklu betri eftir að ég byrjaði að nota það, verða rosalega léttar og mjúkar.

    10/05/2012
  4. Rebekka Þráinsdóttir #

    Sæl Nanna. Mikið er þetta flott síða hjá þér – eins og allt sem þú gerir:) Þetta eru alveg stórmerkilegar vangaveltur og gaman einmitt að velta því fyrir sér hvað er allra síst nauðsynlegt í sæmilegu eldhúsi. Mest held ég nú uppá tvo litla grænmetishnífa, flökunarhníf og einn svona venjulegan sem ég bar með mér heim frá Rússlandi. Má ég líka nefna nokkra netta smjör- og ostahnífa sem ég hef keypt hér heima og heiman – með stálblaði og skapti úr beini eða einhverju sem ég veit ekki hvað er (mjög góðir til að flysja með og svo í smjör og osta auðvitað). Mér finnst líka að ég gæti ekki lifað án gamallar trésleifar sem við höfum átt lengi, eða þá án indversku áhaldanna (einskonar sleikja og tveir „steikarspaðar“ úr einhverjum forláta viði) sem ég hef keypt í Alvörubúðinni á Selfossi – þau eru beinlínis dásamleg. Í Alvörubúðinni fékk ég mér líka litla indverska tréskeið – sem ég nota til að moka karrý og masala upp úr krukkum og get ekki hugsað mér önnur áhöld í slíka aðgerð. Ellý vinkona mín gaf mér volduga töng sem ég er mjög hænd að – sú skipar heiðurs-sess á bekknum hjá okkur. Frá Rússlandi bárum við líka alveg níðþunga steikarpönnu – og það segir því sjálft hversu makalaus hún er. Hún er reyndar nokkuð löskuð eftir að hafa gleymst um daginn á sjóðandi hellu – heldur lengi. Lítil og veikluleg plastvog er mikið notuð, desilítramál, Kitchenaid-vélin sem mamma Ölla gaf okkur er guðsgjöf hreint og beint, ég nota líka „mikið“ matvinnsluvél sem við eignuðumst fyrir mörgum, mörgum árum (hún er einkum notuð ef þarf að rífa þarf mikinn lauk, og án hennar væri sláturgerð mín óhugsandi – ja, nema ef K-aidið gæti hlaupið í skarðið). Vatnshitarinn, espresso-kannan pínulitla úr Góða hirðinum (sem ég fékk með kaffi og öllu:), potturinn sem ég nota til að hita sojamjólkina og plastpískurinn sem ég píska hana með sem og krukkan sem Ölli notar til að hrista sína g-mjólk, eru allt órjúfanlegur hluti af okkar lífi. En það tæki sem flesta hefur glatt og oftast bjargað manni á döprum stundum er að sjálfsögðu sodastrím-tækið frábæra, sem mamma og pabbi gáfu okku í jólagjöf árið 1998 eða 1999. Og bara núna um helgina splæstum við í nýja flösku…

    10/05/2012
  5. Kristín Svava #

    Ég held að uppáhaldseldhúsáhöldin mín séu rifjárn og hvítlaukspressa, sennilega af því að ég tengi þau við svo góðan mat.

    Þessi skemmtilega færsla minnti mig á smásöguna Ómerkinginn eftir Þórarin Eldjárn, sem fjallar um mann sem hefur söfnunaráráttu fyrir eldhúsáhöldum. Þegar ég fór að gúgla söguna komst ég að því að Þórarinn er sjálfur eldhúsáhaldasafnari og hefur haldið sýningu á þeim í Gerðubergi: http://www.gerduberg.is/desktopdefault.aspx/tabid-3475/5844_read-17648/

    10/05/2012
  6. Inga Þórey #

    Við eigum stórt og þungt mortél sem við elskum og getum ekki verið án – svo er mikil hamingja með ikea steypujárnspottinn okkar stóra og fallega, microplane rifjárnið, kitchen aid vélina, hvítlaukspressuna góðu og svo þykir mér gott að eiga nóg af mæliskeiðum og góðum mælikönnum. Svo er mikilvægt að eiga góða hnífa :)

    10/05/2012
  7. Inga Þórey #

    Líst vel á batter whisk Embla Ýr! Annars minnti það mig á að ég elska að eiga góðar sleikjur

    10/05/2012
  8. Tinna Ólafsdóttir #

    Hjartanlega sammála þér með hvítlaukspressuna. Eftir að hafa „sparað“ ægilega mikið með að kaupa ódýrar hvítlaukspressur eftir flutninga að heiman og milli landa gafst ég upp og setti almennilega hvítlaukspressu á óskalistann. Eftir að amma mín elskuleg svaraði kallinu og skellti einni í jólapakkann get ég ekki ímyndað mér hvernig ég komst af áður (kannski dálítið ýkt dæmi en ég nota hvítlauk á hverjum einasta degi).
    Eins og Kristín fór ég líka að hugsa um Ómerkinginn við lestur þessarar færslu. Ég hef verið á höttunum eftir brauðmylsnusköfu síðan ég las söguna.
    P.S.Takk fyrir frábært blogg, það er bæði fallegt og fræðandi.

    10/05/2012
  9. Hrund #

    Ótrúlega gaman að fylgjast með síðunni þinni. Ég hef bakað þónokkuð og eldað eftir þeim uppskriftum sem þú hefur sett hingað inn!
    Langar að benda þér á eina snilld í sambandi við tómatskurð, þú skerð þá einfaldlega með brauðsög og þá geturðu skorið eins þykkar/þunnar sneiðar og þig langar þá stundina :)
    Uppáhaldseldhústólin mín eru sérstaklega tveir hnífar. Annar er gúrkuhnífurinn minn, lítill og nettur, einstaklega vel til þess fallinn að skera gúrku(sem ég geri mikið af svona dagsdaglega, ofan á hrökkbrauð) og svo ávaxtahnífurinn minn sem bæði flysjar og sker :) KitchenAid hrærivélin er jú líka yndisleg. Hvítlaukspressan mín frá Eva Solo er ekki bara falleg heldur einnig góð og þess vegna er hún einnig á listanum :)

    10/05/2012
  10. Björg #

    Mér finnst síðan þín æði og hef prófa að elda ýmislegt af réttinum hjá þér og þeir klikka aldrei !! Uppáhálds eldhústælið mitt er Kitchenaid hrærivélin mín, og núna langar mig mikið að eignast matvinnsluvélina, er þín 110 eða 220 V ? veistu hvort þær eru til 220 V.

    Bestu kveðjur

    10/05/2012
    • Sæl Björg. Vélin mín er keypt í BNA en þeir framleiða þær líka fyrir evrópskan markað. Einar Farestveit í Borgartúni er venjulega með mikið úrval KitchenAid véla og hluta og því ansi líklegt að það sé hægt að fá slíkan grip þar :)

      10/05/2012
  11. En skemmtileg færsla hjá þér Nanna! Greinilega ansi vel búin :)

    Það sem ég nota mest í mínu (illa búna) eldhúsi er:
    – Wusthof tómathnífur sem ég nota til að skera allt mögulegt og ómögulegt.
    – Rafmagnssítruspressa
    – Sílikon-muffins form
    – Keramíkbökuform

    Svo á ég aðeins af (of lítið notuðum) skemmtilegum tækjum:
    – Kitchen Aid sem ekki er komin nógu mikil reynsla á
    – Jógúrt- og ostavél
    – Safapressu

    Mig dreymir um:
    – Le Creuset steikarfat
    – Aukadót á Kitchen Aidinn
    – Töfrasprota (minn eyðilagðist og ég hef ekki enn endurnýjað)
    – Vöfflujárn
    – Þurrkofn
    – Stærra eldhús!

    11/05/2012
  12. Ég er bara nýbúin að uppgötva þessa síðu og hef haft alveg rosalega gaman af henni. Ég flutti heim frá Seattle seinasta haust og sakna þess óendanlega að fara í grams leiðangra í eldhús deildinni í TJ Maxx og sambærilegum verslunum. Ég er hjartanlega sammála öllu á þessum lista og skil ekki hvernig ég fór að í eldhúsinu fyrir tíma matvinnsluvélarinnar minnar.

    Takk fyrir skemmtilega síðu,ég held áfram að fylgjast með. :)

    11/05/2012
  13. haffah #

    Ég er algjörleg sammála þér!! Þarf reyndar að fá mér hitmælir í ofninn, er með gasofn og hann er alveg að fara með mig!!! Ég eignaðist stoneware frá Pampered Chef, mæli eindregið með því. Það er svoldið price en baka smákökur eða pizzu á þessum steinum er meiriháttar!! hitin jafnast, því steinninn hitnar. Sérstaklega þegar maður er með ehm.. svona skemmtilega ofna!!

    Rosalega gaman að fylgjast með síðunni þinni!!

    12/05/2012

Trackbacks & Pingbacks

  1. Auðveld rabarbarasulta | Eldað í Vesturheimi

Skildu eftir athugasemd