Sítrónu- og ricottapönnukökur með bláberjasósu
Ég er orðin svolítið pönnukökuóð. Þær eru bara svo góðar, fallega gylltar og skemmtileg tilbreyting frá vikudagsmorgunmatnum að ég stenst ekki mátið. Það er líka svo notalegt að setjast við drekkhlaðið eldhúsborðið eftir að hafa sofið út og dundað sér í rólegheitunum í eldhúsinu. Það er komið haustkul í loftið í Brooklyn, vindurinn er farinn að gusta köldu en ekki heitu og það er því ekki kvöl og pína að kveikja á ofninum og standa fyrir framan logana á gaseldavélinni.
Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi hjá mér núna. Sítrónubragðið kemur alls ekki sterkt fram en spilar samt ljúft aukahlutverk og þeyttu eggjahvíturnar gera það að verkum að deigið þarf ekki lyftiduft en afurðin verður samt létt og eilítið loftkennd. Það má annaðhvort hræra ricottaostinn þar til hann blandast alveg inn í deigið (það finnst mér best) eða blanda honum varlega saman við þannig að maður fær stundum upp í sig bita af ricotta. Uppskriftin er fyrir þrjá og ég mæli sterklega með að ef þið eruð að elda fyrir fjóra eða fleiri að tvöfalda uppskriftina. Bláberjasósan kom líka mjög vel út og er góð tilbreyting frá hlynsírópinu (þó það megi auðvitað skvetta smá hlynsírópi yfir líka).

























