Skip to content

Bandarísk hjónabandssæla

Það er fátt sem mér finnst eins heimilislegt og nýbakað bakkelsi með kaffinu. Þegar ég var lítil og við ferðuðumst norður á Dalvík í heimsókn til ættingjanna þá var amma Lilja alltaf með heitt á könnunni og nýbúin að baka pönnukökur sem hún fyllti svo af þeyttum norðlenskum rjóma og sultu. Við tróðum okkur öll í litla eldhúsið hennar, horfðum út á sjóinn, göntuðumst og borðuðum á okkur gat. Í rauninni þykir mér alltaf mjög vænt um að koma norður í fallega sjávarþorpið – þar er kafftíminn athöfn út af fyrir sig og konurnar í ættinni afskaplega duglegar að baka.

Ég fann þessa uppskrift fyrir stuttu á 17 and baking og varð strax yfir mig hrifin (ætli smjör- og sultumagn hafi ekki verið aðalþátturinn í því). Þetta er í raun hjónabandssæluuppskrift eða mér finnst útkoman bera þess keim. Það má auðvitað nota hvaða sultu sem er í uppskriftina og þó ég sé ánægð með hindberjasultuna þá finnst mér rabarbarasultan alltaf skemmtilegust í svona köku.

Bandarísk hjónabandssæla

(Uppskrift frá 17 and baking)

  • 1 1/4 bolli [160 g] hveiti
  • 1/3 bolli [65 g] púðursykur (ég notaði ljósan púðursykur)
  • 1/2 tsk salt
  • 140 g smjör, kalt og skorið í litla bita
  • 1 msk mjólk
  • 1 1/2 bolli [135 g] haframjöl
  • 3/4 bolli [180 ml] hindberjasulta*

[*Í rauninni má nota hvaða sultu sem ykkur dettur í hug. Deigið er frekar sætt, ef sultan er mjög sæt er ágætt að minnka magn púðursykurs í uppskriftinni.]

Aðferð:

Hitið ofninn í 375 F/ 190 C.

Blandið saman hveiti, sykri og salti í matvinnsluvél. Bætið síðan smjörinu út í og blandið þar til deigið byrjar að myndast. Hellið mjólkinni út í og blandið. [Ef þið eigið ekki matvinnsluvél má líka gera þetta með handþeytara eða gera þetta í höndunum með gaffal að vopni.]

Flytjið deigið yfir í meðalstóra skál og blandið haframjölinu saman við. Hnoðið þar til allt hefur blandast vel saman.

Setjið 3/4 bolla [2 dl]  af deiginu til hliðar. Þrýstið restinni af deiginu þétt og jafnt ofan í smurt bökunarform 9 x 9″ [23 x 23cm] að stærð. Smyrjið sultunni jafnt yfir deigið (ef sultan er mjög þykk í sér þá er gott að hita hana aðeins í potti áður en henni er smurt á). Myljið restina af deiginu jafnt yfir allt saman.

Bakið í miðjum ofni þar til deigið verður gyllt á litinn, ca. 20-25 mínútur. Leyfið að kólna alveg á grind. Notið hníf og skerið með fram forminu til að losa kökuna frá, lyftið henni upp úr forminu og flytjið yfir á skurðarbretti. Skerið í bita.

Prenta uppskrift

One Comment Post a comment
  1. Namm… Mamma var að búa þetta til með rababarasultu og þetta er ótrúlega gómsætt en ég líka elska haframjöl í bakstri!!

    18/02/2012

Skildu eftir athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

%d bloggurum líkar þetta: