Rabarbarasorbet

Þá er ég búin að kveðja systur mína eftir yndislega viku sem leið alltof hratt. Litla kotið virðist ansi tómlegt og það verður skrítið að detta aftur í daglega rútínu af lærdómi og skriftum. Við vorum mjög dugleg að labba um hin ýmsu hverfi Brooklyn, skoðuðum hinn fræga og víðáttumikla Greenwood grafreit, flatmöguðum í sólinni í Prospect Park og átum á okkur gat við hvert tækifæri. Þetta er fimmta ferð Emblu til New York en í fyrsta skiptið sem hún eyðir tíma utan Manhattan og hún var fljót að lýsa því yfir að þrátt fyrir mikla hrifningu á Manhattan þá væri Brooklyn mun skemmtilegri. Sem ég get tekið heilshugar undir.

Við vöknuðum snemma á laugardagsmorgninum, hengdum myndavélarnar um hálsinn og töltum út á bændamarkaðinn. Jarðarberjatíðin er greinilega að ná hámarki – ljúfur og sætur ilmur lá í loftinu og við vorum ekki lengi að því að grípa nokkra bakka af jarðarberjum, eitt knippi af rabarbara og annað af aspas og ýmislegt góðgæti beint frá býli.

Við fórum á frábæran veitingastað í Fort Greene í einum göngutúrnum okkar og deildum tveimur ískúlum. Annar ísinn var rabarbarasorbet með engiferi sem var svo ferskur og bragðgóður að ég mátti til með að nýta rabarbarann í að búa til minn eigin. Ég lagðist í smá rannsóknir og fann uppskrift á netinu sem notar ekki of mikinn sykur á móti rabarbara og útkoman er þessi fallega bleiki sorbet með ljúfu rabarbarabragði og smá vísi að engiferi. Upprunlega uppskriftin notar smá sterkt áfengi til að koma í veg fyrir að sorbetinn frjósi um of en það má auðvitað sleppa áfenginu og leyfa ísnum bara að standa við stofuhita í nokkrar mínútur eftir að hann er tekinn úr frysti til að mýkja hann aðeins.




















