Massaman karrí
Ég dró Elmar með mér suður í Kínahverfið í gær til að versla hráefni í þetta gómsæta karrí. Að fara þangað er eins og að stíga inn í annan heim, allir (með fáum undantekningum) tala kínversku eða víetnömsku, öll skilti eru á kínversku og maður finnur ótrúlegustu hráefni í matarmörkuðunum. Mér finnast skúringarföturnar með lifandi froskum í skemmtilegastar, þeir láta mann fá tangir svo maður getur dregið upp úr feitasta og ljótasta froskinn. Ég hef reyndar ekki reynt það ennþá en kannski ef ég finn girnilega froskauppskrift þá læt ég á það reyna.
Þessi uppskrift er smá breyting á uppskrift úr bókinni The Asian Vegan Kitchen eftir Hemu Parekh. Ég og dóttir Hemu erum mjög góðar vinkonur og við vorum nánast óaðskiljanlegar þegar við vorum saman í skóla í Tokyo. Ég eyddi því nokkrum árum í eldhúsinu hennar Hemu og hún var mjög dugleg að gefa mér að borða (sérstaklega þar sem ég var mjög dugleg að borða). Maturinn hennar er það ljúffengasta sem ég hef smakkað og ég er mjög spennt yfir bókinni hennar. Ég fæ reyndar oft hroll yfir orðum eins og ,,gluten-free“ og ,,vegan“ því ég á bara erfitt með að skilja slíkar sérþarfir í mataræði. En í rauninni er mjög mikið af mat í Asíu ,,vegan“ matur þar sem mjólkurvörur og kjöt eru alls ekki nauðsynleg uppistaða í réttum þar og því er ég alls ekki afhuga þessari bók.
Það er auðvelt að leika sér með þessa uppskrift. Það má minnka magn af kartöflum og skipta út fyrir kjúkling, tófú eða svínakjöt, það má líka nota sveppi í þennan rétt. Ef þú vilt milda laukbragðið þá geturðu steikt laukinn í pönnu þangað til hann verður glær áður en honum er bætt við réttinn. Ég mæli svo með að bera réttinn fram með sjóðandi heitum jasmín hrísgrjónum.





















