Súkkulaðibitakökur með ristuðum kókos

Við áttum alveg frábæra helgi í borginni og erum ansi brún og sælleg eftir allt húllumhæið. Guðbjört, vinkona okkar, vinnur hjá Bloomberg fréttaveitunni í borginni og var svo góð að bjóða okkur með á sumarhátið fyrirtækisins. Við vissum að þetta væri ansi vel útilátin hátíð en okkur grunaði kannski ekki hversu langt þetta var frá grilluðum pylsum og gosi. Þeir höfðu leigt eyju í East River og buðu upp á heilgrillaðan grís á teini, mexíkóskan mat, indverskan mat, grillaðan fisk, hamborgara, pylsur, bjór, sangríur, gos og ís. Þarna mátti fara í míní-golf, paintball, fótbolta og alls kyns leiktæki. Allt í boði fyrirtækisins. Við skemmtum okkur alveg stórkostlega, Elmar vann paintballkeppni og ég brann á öxlunum.

Það eru bara örfáir dagar síðan ég lofaði sjálfri mér að kveikja ekki á ofninum það sem eftir lifir sumars. Eldhúsið okkar er innst í litlu stúdíóíbúðinni okkar, er gluggalaust og ofninn er risastór. Þegar loftkælingin er ekki í gangi (en henni er stjórnað af eigendunum uppi) þá er það ekki heiglum hent að fýra upp í skrímslinu því innan nokkurra mínútna verður íbúðin alveg bullsjóðandi heit. En mig langaði bara svo mikið í smákökur að ég stillti vifturnar á fullt, sneri rofanum og reyndi að hafa hraðar hendur. Og útkoman var alveg þess virði – súkkulaðibitakökur með brúnuðu smjöri og kókos. Reyndar fannst mér kókosbragðið heldur milt og mæli með að skella smá meira kókosmjöli heldur en uppskriftin kveður á um.






















