Vikulok

Ég hef ekki verið nógu dugleg að lesa mér til gamans undanfarið. Ég er að reyna að ráða bót á þessu og er núna að lesa My Life in France eftir Juliu Child. Hún er mjög skemmtileg og gefur bæði innsýn inn í matarheim Child sem og lífið í París stuttu eftir seinna stríð. Bókin höfðar bæði til matar- og sagnfræðisnördsins í mér og ef aðrir deila þessum áhugamálum mínum þá mæli ég með henni. Aðrar bækur á náttborðinu eru Appelsínur frá Abkasíu eftir Jón Ólafsson og matreiðslubókin Plenty eftir Yotam Ottolenghi sem ég var að fá að gjöf.

Ég er mikill aðdáandi Joy the Baker. Hún er ótrúlega dugleg, óhrædd við að vera hún sjálf og uppskriftirnar hennar eru alltaf ljúffengar. Í vikunni skrifaði hún færslu um það að blogga – 10 Real-Talk Blog Tips Part II (hér finnið þið fyrri partinn). Fyrir þau okkar sem halda úti matar- og lífstílsbloggum eða eru að íhuga slíkt ætti þetta að vera skemmtileg lesning.
Fyrir mig er þetta líka góð áminning. Af og til (en afar sjaldan) velti ég því fyrir mér að hætta með þetta blogg, svona þegar mér finnst síðan hálfeinmanaleg og ég á erfitt með að finna tíma til að sinna henni. En svo verð ég þess áskynja að mér þykir svo vænt um það sem ég skrifa, mynda og skapa hérna að ég myndi ekki tíma að hætta. Ég tek því undir með Joy – „just have a doughnut and keep going“.

Og talandi um kleinuhringi. Eruð þið búin að kaupa ykkur kleinuhringjamót? Ég er búin að búa til þessa kleinuhringi fjórum sinnum á síðustu tveimur vikum. Alltof gott og alltof fljótlegt.
Íslensku vefverðlaunin voru haldin í síðustu viku og ég var himinlifandi með að Lemúrinn hafi unnið í sínum flokki. Þessi vefsíða er algjör snilld og ég get gleymt mér við að lesa greinarnar þeirra. Þau eru iðin við kolann og eiga þessa viðurkenningu fyllilega skilið. High-five!



















