Bandarísk hjónabandssæla

Það er fátt sem mér finnst eins heimilislegt og nýbakað bakkelsi með kaffinu. Þegar ég var lítil og við ferðuðumst norður á Dalvík í heimsókn til ættingjanna þá var amma Lilja alltaf með heitt á könnunni og nýbúin að baka pönnukökur sem hún fyllti svo af þeyttum norðlenskum rjóma og sultu. Við tróðum okkur öll í litla eldhúsið hennar, horfðum út á sjóinn, göntuðumst og borðuðum á okkur gat. Í rauninni þykir mér alltaf mjög vænt um að koma norður í fallega sjávarþorpið – þar er kafftíminn athöfn út af fyrir sig og konurnar í ættinni afskaplega duglegar að baka.

Ég fann þessa uppskrift fyrir stuttu á 17 and baking og varð strax yfir mig hrifin (ætli smjör- og sultumagn hafi ekki verið aðalþátturinn í því). Þetta er í raun hjónabandssæluuppskrift eða mér finnst útkoman bera þess keim. Það má auðvitað nota hvaða sultu sem er í uppskriftina og þó ég sé ánægð með hindberjasultuna þá finnst mér rabarbarasultan alltaf skemmtilegust í svona köku.

Ég hef tekið þetta fram áður en ég held að ég vilji segja það aftur. Þetta blogg er ekki heilsufæðisblogg. Alls ekki. Ég ætla ekki einu sinni að reyna við slíkt þema – ég elska smjör, sykur og 





