Ég tek flestar þær myndir sem birtast á blogginu - fyrir utan þær sem ég píni eiginmann minn og stundum systur til að taka. Þær tilheyra samt mér og ég yrði mjög þakklát ef beðið er um leyfi áður en þær eru endurbirtar.
Uppskriftir eru mínar nema annars sé getið. Hægt er að lesa um þær bloggsíður og bækur sem ég sæki helst innblástur minn í dálkinum Bækur & Blogg.
Þar sem ég þýði yfirleitt uppskriftir frá öðrum tungumálum yfir á íslensku þá leynast stundum villur og misræmi í textanum. Ég er alltaf mjög þakklát fyrir ábendingar um slíkt og laga það strax og mér er bent á það.
Þetta er vissulega síðan mín en það gerir síðuna skemmtilegri ef þið gerið hana að ykkar líka. Skiljið eftir athugasemdir og uppástungur. Látið mig vita hvernig gekk að búa til réttina. Mér finnst fátt eins upplífgandi og að heyra frá ykkur, hvort sem það er hér eða á facebooksíðu bloggsins.
Það má líka hafa samband við mig í gegnum netfangið:
nannateits [hjá] gmail [punktur] com